Frjálsar

Fréttir

Helga Margrét setur nýtt Íslandsmet í fimmtarþraut


Helga Margrét fór ásamt Stefáni Jóhannssyni þjálfara sínum til Svíþjóðar um helgina og keppti þar í fimmtarþraut á sænska meistaramótinu. Helga varð önnur í þrautinni á nýju Íslandsmeti 4205 stigum. Fimmtarþraut samanstendur af 60m grindahlaupi, hástökki, kúluvarpi, langstökki og 800 metra hlaupi.

Í metþraut sinni var árangur Helgu betri í öllum greinum en þegar hún setti fyrr Íslandsmet sitt. 
Árangur Helgu í einstökum greinum er: 60m grind 8,86s, hástökk 1,71m, kúluvarp, 13,68m, langstökk 5,63m, 800m 2:15,31 mín. 
Þó met Helgu sé einkar glæsilegt þá á hún samt betri árangur í öllum greinum utan þrautar, því eru allir möguleikar til staðar fyrir frekari bætingu.

Frjálsíþróttadeildin tekur á móti Helgu og Stefáni í frjálsíþróttahöllinni í dag klukkan 18:00, endilega fjölmennum til að fagna!

Lesa
Skráðar fréttir: 93 - Síða: 1 af 13

Tilkynningar

Glímufélagið Ármann | Íþróttamiðstöðin Laugaból | Engjavegur 7 | Sími: 580 5900 | Fax: 580 5901 | Hafðu samband