Fimleikar

Fréttir

Fimleikadeild Ármanns safnar fyrir börn í Guatemala


Fimmtudaginn 8. júli síðastliðinn stóð Fimleikadeild Ármanns fyrir fjáröflun til styktar fórnalömbum fellibylsins Agöthu sem reið yfir Mið-Ameríku í byrjun sumars. Fjármunirnir sem safnast verða sendir til Guatemala þar sem þeim verður vel varið í að kaupa byggingarefni í ný hús fyrir fjölskyldur sem misstu heimili sín og aðrar nauðsynjavörur.

Iðkendur fimleikadeildarinnar söfnuðu áheitum og gengu á höndum niður Laugarveginn. Hand-skrúðgangan hófst á Hlemmi og gengið var niður að Lækjartorgi.

Hesltu fjölmiðlar landsins fjölluðu um verkefnið:

mbl-sjónvarpið:

http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/?fl=0;media_id=50138;play=1&ref=fpsjonvarp

rúv:

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4498047/2010/07/08/13/

Áhugasamir geta styrkt verkefnið með því að leggja inn á eftirfarandi reikning:

Nr: 0313-26-1149

Kt: 491283-1149



Lesa
Skráðar fréttir: 454 - Síða: 1 af 65

Tilkynningar

Glímufélagið Ármann | Íþróttamiðstöðin Laugaból | Engjavegur 7 | Sími: 580 5900 | Fax: 580 5901 | Hafðu samband