Úr sögu félagsins | Skoða öll albúm


Tilkynningar


Þrepamót FSÍ - áhaldafimleikar

Nú um helgina 13. - 14. febrúar fer fram Þrepamót FSÍ í fimleikasal Ármanns í Laugabóli. Keppendur á mótinu koma frá 8 fimleikafélögum víðsvegar af landinu en þau eru Björk, Fimleikafélag Akureyrar, Fylkir, Gerpla, Grótta, Keflavík, Stjarnan og Ármann. Keppt er í þrepum íslenska fimleikastigans hjá báðum kynjum. Stúlkurnar keppa í 1. - 4. þrepi og drengirnir í 1. - 5. þrepi.
Nánari fréttir og úrslit má nálgast hér að neðan.

Nú þegar er fyrsta mótshluta lokið, í honum kepptu stúlkur og drengir í 1. og 2. þrepi. Bæði kynin sýndu glæsilegar æfingar og má segja að vert sé að fylgjast með þessum keppendum í framtíðinni.

Öðrum hluta mótsins er nú lokið, í honum kepptu stúlkur í 3. þrepi og drengir í 5. þrepi. Bæði þrepin voru aldursskipt. Í þessum mótshluta sem þeim fyrri voru sýnd glæsileg tilþrif. Óskum öllum keppendum og þjálfurum dagsins til hamingju með mótið !!!

Nú er þriðja og síðasta hluta Þrepmamótsins búinn, sýndar voru flottar æfingar og var samkeppnin og spennan mikil í þessum hluta og þá sérstaklega stúlknamegin.

Mótið var hið skemmtilegasta í alla staði, Fimleikadeild Ármanns vill þakka öllum sem komu að mótinu fyrir skemmtilega helgi og þá sérstaklega öllum þeim sjálfboðaliðum sem aðstoðuð deildina við að gera mót sem þetta framkvæmanlegt.

Úrslit
1. þrep KK
1. þrep KVK
2. þrep KK
2. þrep KVK 14 ára og yngri
2. þrep KVK 15 ára og eldri
3. þrep KVK 13 ára og yngri
3. þrep KVK 14 ára og eldri
3. þrep KK 13 ára og yngri
3. þrep KK 14 ára og eldri
4. þrep KK 11 ára og yngri
4. þrep KK 12 ára og eldri
4. þrep KVK 11 ára og yngri
4. þrep KVK 12 ára
4. þrep KVK 13 ára og eldri
5. þrep KK 9 ára
5. þrep KK 10 ára







14.02.10 17:54
það er 2x skráð úrslit hjá 3 þrep drenga eldri og vantar hjá 3 þrep yngri
14.02.10 20:03
Væri möguleiki á að fá 3. þrep hjá strákum rétt?


Afmælisbörn dagsins
Eysteinn Finnsson (18)
Glímufélagið Ármann | Íþróttamiðstöðin Laugaból | Engjavegur 7 | Sími: 580 5900 | Fax: 580 5901 | Hafðu samband