Úr sögu félagsins | Skoða öll albúm


Tilkynningar


Júlían og María kraftlyftingafólk ársins hjá kraftlyftingadeild Ármanns

Í afmælishófi Ármanns þann 13.des. síðastliðinn, voru afhentar viðurkenningar til þeirra keppenda, sem tilnefndir voru sem kraftlyftingamaður ársins 2009 og efnilegasti kraftlyftingamaðurinn.
Þau sem hlutskörpust voru að þessu sinni, voru María Guðsteinsdóttir, sem var valin kraftlyftingakona ársins 2009 og Júlían J. K. Jóhannson, sem var valinn efnilegasti iðkandi ársins. María varð Íslandsmeistari á árinu, bæði í kraftlyftingum, bekkpressu og réttstöðulyftu og var jafnframt fulltrúi Íslands á þremur alþjóðamótum. Júlían varð Íslandsmeistari í kraftlyftingum í drengjaflokki, Bikarmeistari og Íslandsmeistari í réttstöðulyftu, en hann hefur sýnt mjög góðar framfarir á árinu og framhaldið lofar góðu.




Afmælisbörn dagsins
Eysteinn Finnsson (18)
Glímufélagið Ármann | Íþróttamiðstöðin Laugaból | Engjavegur 7 | Sími: 580 5900 | Fax: 580 5901 | Hafðu samband