Ungbarnasund
Sunddeild Ármanns bíður upp á ungbarnasund í Árbæjarlaug. Námskeiðin fara fram á laugardagsmorgnum.
Kennari er Matja Steen, ungbarnasundskennari og sjúkraþjálfari. Matja er félagi í BUSLA, félagi ungbarnasundskennara.
Netfang: matjasteen[at]yahoo.no.
Næstu námskeið hefjast 11. september.
Hvert námskeið er 10 skipti og kostar 14.000 kr. Aðgangur fyrir foreldri er innifalið í því gjaldi.
Skráning fer fram hjá Stellu í netfangi stellag[at]torg.is og síma 557-6618 eftir kl. 17.
Markmið ungbarnasunds er að eiga ánægjulegar stundir með barninu og kenna því að umgangast vatnið. Foreldrum eru kennd
handtök sem leyfa barninu að njóta sín í vatninu auk þess að setja barnið í kaf. Það er auðveldara að hreyfa sig í vatni en á þurru
landi og því er sundið góð leið til þess að styrkja vöðva og örva hreyfiþroska barnsins. Rannsóknir sýna að ungbarnasund geti
stuðlað að betri svefni hjá börnum.
Köfun er stór hluti af ungbarnasundinu. Til að byrja með er byggt á meðfæddu viðbragði, köfunarviðbragði, en í því felst að barnið
lokar fyrir öndunarveginn ef það fær loft eða vatn framan í sig. Þetta viðbragð er mjög sterkt fyrst eftir fæðingu, en eldist smám
saman af barninu við eins árs aldur. Í sundinu lærir barnið smám saman að loka sjálft fyrir öndunarveginn þegar það á að fara í kaf.
Best er að byrja í ungbarnasundi á bilinu 3 til 6 mánaða en það er vel hægt að byrja bæði fyrr og seinna. Börnin skulu vera í
sundfötum sem eru þétt um lærin til þess að „slys“ komist ekki út í laugina. Einnig er hægt að kaupa sérstakar sundbleyjur til að
vera í innanundir sundfötunum.
Myndir frá námskeiðunum má finna á tenglinum hérna.